26.9.2009 | 13:33
Kartöflur
Alþýða Húsavíkur.
Ykkur ber samkvæmt þessu sendibréfi fjármálaráðherra að rækta kartöflur ykkur til matar.
Öll brot á beiðni þessari verður refsað af hörku. Þó að tekjur af hvalaskoðun fari nú minnkandi á haustmánuðum og norðanáttir verði ríkjandi á næstu mánuðum er gott fyrir ykkur að ylja hvort öðru og lifa á ástinni. Sú leið sem bölvaðir kapítalistarnir völdu þjóðinni var ekki sú rétta. Samyrkjubú það sem RÍKIÐ (ég) ætla að reisa hjá ykkur fyrir norðan næsta sumar, kemur til með að breyta allri lífsafkomu íbúa Húsavíkur og nágrennis. Hugmyndin er sú að reisa sauðfjárbú af þeirri stærðargráðu að heimurinn allur mun standa á öndinni yfir stærð og mikilfengleik búsins,40.000 fjár á húsum. Með þessu sláum við nokkrar flugur í einu höggi.
1. Þetta er vistvænt.
2. Kostar lítið rafmagn.
3: Aukinn sandblástur(minna að slá)
4. Nóg kjöt
5. Meira hangikjöt
6. Meira slátur.
7. Fullt af skít á túnin
8. Aðdráttarafl fyrir ferðamenn
9. Gott fyrir ullarsölu
10. Vinna fyrir alla.
Enginn ætti að véfengja þessa stórkostlegu framkvæmd nema þjóðníðingar.
Áfram Húsavík
Bestu kveðjur
Steini Fúsa
Viljayfirlýsing ekki framlengd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.8.2009 | 23:02
Hann er á lífi
Ólafur Ragnar slasaðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.8.2009 kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.7.2009 | 11:41
MESSÍAS
Skundum í Bónus og sýnum samstöðu gegn illa innrættum blaðamönnum sem enn eina ferðina saka (geisla)baugs fjölskylduna um eitthvað misjafnt. Þó að það eigi að búa til þrjú þúsund milljónir í spilafé sem eru fengnar með spilaborgarviðskiptum, gjaldþrotum og nauðasamningum í endurhverfum viðskiptum sem enginn skilur, þá getur almenningur sem betur fer ennþá fengið kjúklingbringur á tilboði í Bónus.
Lifið heil
Verum bjartsýn
Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2009 | 18:20
Vinstri sinnuð samfylkingarfífl
Eru menn komnir á brún geðveikinnar ? Eru þessir ráðamenn fávitar? Voru vínarbrauðin full af amfetamíni og öðrum ofskynjunarlyfjum sem menn belgdu sig út með þegar samið var um icesave? Þetta nær ekki nokkurri átt. Það sem okkur vantar strax er leiðtogi sem tekur ákvarðanir eingöngu með hagsmuni Íslendinga í huga en því miður er sá einstaklingur ekki á þingi. Því miður. Hver hann ætti að vera veit ég ekki, en er ekki mál til komið að einhver taki af skarið.
Verum bjartsýn
Borga tvo milljarða fyrir Breta? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2009 | 11:15
Vínarbrauð
Svavar Gestsson er klárlega ekki rétti maðurinn í starfið enda með ólíkindum að maður sem setið hefur og borðað vínarbrauð og snittur í hvert mál undanfarin ár á kostnað ríkisins sé valinn í starfið. Umhverfið sem hann hefur lifað í undanfarin ár á ekkert skylt við raunverulegt líf. Að borða vínarbrauð í jakkafötum og brosa fyrir land og þjóð, setur afdankaðann stjórnmálamann ekki í þá stöðu að vera klókur samningamaður. Hann hefur engann skilning á stöðunni því snittubakkarnir birgja honum sýn, þ.e. útsýnið er ekkert. Þessi maður á að fá vinnu í Myllunni sem yfirmaður í vínarbrauðsdeild fyrirtækisins.
Lifið Heil
Verum Bjartsýn
Svavar fullkomlega vanhæfur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2009 | 13:28
Ósanngjart
Húsleit hjá Milestone og Sjóvá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2009 | 19:41
Þjóðhetja
Þessi maður á allann minn stuðning.
Gangi honum vel í framtíðinni.
Verum bjartsýn
Bankinn fékk ekki lyklana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.6.2009 | 15:00
Til HAMINGJU ÍSLAND
HVAR ERU EIGENDUR BÚSÁHALDA Í LANDINU ?
Fólkið sem kom fyrri stjórn frá og kaus þennann hroða sem nú myndar ríkisstjórn, hvar er það fólk og af hverju lætur það ekki í sér heyra.
Eru vinstri menn ekki eggjanna virði.
Verum bjartsýn
Bretar fagna Icesave-samningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2009 | 09:00
Ókeypis nám
Það væri ekki verra ef tannlæknar og læknar sem eru menntaðir fyrir skattfé yrðu skyldaðir til að vinna á vegum ríkisins í ákveðinn tíma eftir nám. Tannlæknar myndu sinna tanngæslu barna í eitt ár eftir nám og verkefni almennra lækna yrði fundinn farvegur.
Verum bjartsýn
Læknar flýja kreppuland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.5.2009 | 23:36
Festum allt.
Mjólk kr. 42
Franskbrauð kr. 58
1 kg. ýsa kr. 234
og allir skulu vera í eins fötum.
Verum bjartsýn
Festa gengið í 160 - 170 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)